Væntanleg 2026
Hér vil ég vera
Rithöfundurinn Hera skrifar örlagasögu konu sem gerist rúmum áttatíu árum áður. Líf þeirra tveggja virðist skuggalega líkt þrátt fyrir að tíminn veiti þeim ólík bjargráð.
Árið er 2019: „Ég held áfram að skrifa póstinn og reifa ýmislegt um handritið: „Það er þessi sjúklega meðvirkni, allt að því ástarfíkn, sem ég persónulega tengi svo sterkt við …“
Árið er 1936: „Fanney leit óttaslegnum augum á pabba og hvíslaði: „Það er þessi bannsettur spíritus, hann hefur náð tökum á henni aftur.“ Ekkert okkar skildi almennilega hvað var að gerast. … Og það sem meira var … hvar voru börnin hennar?“
Hér vil ég vera er fjórða skáldsaga Guðrúnar og sjálfstætt framhald af Hann kallar á mig. Hana má lesa án þess að hafa lesið fyrri bókina.

- Fáanleg sem
- Kilja
- Útgefandi
- Bókafélagið/GSS
- ISBN
9789935584311 · Kilja